Félag klínískra dáleiðenda
Félag klínískra dáleiðanda var stofnað 18. nóvember, 2021
Félagsmenn hafa öll lokið framhaldsnámi
Dáleiðsluskóla Íslands í meðferðardáleiðslu
og Hugrænni endurforritun.
Eingöngu þau sem hafa lokið ofangreindu námi geta orðið
félagar en þó getur stjórn félagsins veitt öðrum aðild ef allir
stjórnarmenn telja menntun og reynslu umsækjanda fullnægjandi.
Félagsmenn eru nú 73
Samþykktir félags klínískra dáleiðenda
1.gr.
Félagið heitir Félag klínískra dáleiðenda
2. gr.
Hlutverk félagsins er að vinna að hagsmunum félagsmanna, kynna starf þeirra fyrir almenningi, opinberum stofnunum og fyrirækjum og vinna að almennri viðurkenningu á klínískri dáleiðslu.
3. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með beinum kynningum og með auglýsingum
4. gr.
Félagsaðild.
Þau sem hafa útskrifast af framhaldsnámskeiði Dáleiðsluskóla Íslands í meðferðardáleiðslu og hugrænni endurforritun geta orðið félagar. Einnig þau sem stjórn félagsins er sammála um að hafi þá þekkingu og reynslu og hafi sýnt þann árangur sem jafngildi slíku námi.
5. gr.
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs.
Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.
6. gr.
Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. maí ár hvert og skal boða til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað.
Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Skoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagðar fram tillögur til lagabreytinga ef einhverjar eru
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning formanns
7. Kosning stjórnar
8. Kosning varamanna
9. Kosning skoðunarmanns reikninga
10. Kosning í siðanefnd
11. Önnur mál
Stjórn félagsins skal skipuð 3-5 félagsmönnum, formanni og 2 – 4 meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Einnig er heimilt að kjósa allt að 5 varamenn.
Formaður skal kjörinn sérstaklega . Stjórnin skiptir með sér verkum og skipar í embætti gjaldkera og ritara. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda.
Formaður boðar til stjórnarfunda. Ef 3 eða fleiri félagsmenn óska eftir að boðað sé til félagsfundar skal stjórnin gera það innan 2ja vikna. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.
Stjórn skal skrá fundargerðir yfir stjórnarfundi og skulu þær vera aðgengilegar
félagsmönnum, t.d. í hóp á Facebook.
8.gr.
Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi. Félagsgjöld skulu innheimt árlega
9. gr.
Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið til þeirra hluta sem um getur í 2. gr.
Stjórn félagsins og aðrir kosnir fulltrúar eru ólaunaðir
10. gr.
Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með 2/3 atkvæða og renna eignir þess til þeirra góðgerðarmála sem ákveðin verða á slitafundi.
11.gr.
Til þess að sameina dáleiðendur og einfalda skipulag verði Félag Klínískra dáleiðenda deild í Dáleiðslu félaginu fs en með sjálfstæða stjórn.
Félagar sem eru í báðum félögum greiða aðeins félagsgjald til annars þeirra.
Fjárhagur félaganna verði sameiginlegur og tekjum af félagsgjöldum fyrst og fremst varið til kynningar á dáleiðslu og dáleiðslumeðferð.
Þessi grein öðlist gildi þegar hún hefur verið samþykkt á félagsfundum í báðum félögum.
12. gr.
Í siðanefnd eru þrír félagsmenn, sem kosnir eru á aðalfundi félagsins. Ef kæra berst stjórn félagsins vegna mögulegs brots félagsmanns á siðareglum félagsins skal stjórn vísa málinu til siðanefndar.
Siðanefnd tilkynnir það til viðkomandi félagsmanns og gefur honum kost á að koma sínum sjónarmiðum til skila. Siðanefnd tekur málið til umfjöllunar og skilar umsögn sinni og tillögum um aðgerðir, sem
byggðar eru á öllum gögnum málsins, til stjórnar félagsins svo fljótt sem auðið er. Stjórn félagsins tekur síðan ákvörðum um aðgerðir. Fyrir ítrekuð og/eða alvarleg brot félagsmanns á siðareglum félagsins
hefur stjórn heimild, að höfðu samráði við siðanefnd, til að vísa viðkomandi tafarlaust úr félaginu. Félagsgjald endurgreiðist þá ekki.
Tillögur að breytingum á siðareglum félagsins skal leggja fyrir aðalfund. Þær skulu berast stjórn félagsins mánuði fyrir aðalfund, sem kynnir þær með sannanlegum hætti og eigi síðar en í fundarboði.
Lög þessi voru uppfærð á aðalfundi 15. júní, 2024
Siðareglur Félags
klínískra dáleiðenda
1.gr.
Tilgangur meðferðarstarfsins er að bæta heilsu meðferðarþegans og dáleiðandinn vinnur að því markmiði af heilum hug í samstarfi við meðferðarþegann.
2.gr.
Dáleiðandi gefur meðferðarþega allar nauðsynlegar upplýsingar varðandi þá meðferð sem hann veitir.
3.gr.
Dáleiðandi sjúkdómsgreinir ekki meðferðaraðila og reynir ekki á nokkurn hátt að hafa áhrif á læknismeðferð eða lyfjagjöf sem meðferðaraðili kann að vera undir.
4.gr.
Dáleiðandi er bundinn þagnarskyldu gagnvart meðferðarþegum sínum og ber að sýna þeim fullan trúnað og virðingu.
5.gr.
Dáleiðanda ber að fara með allar persónulegar upplýsingar sem trúnaðarmál og geyma þær í samræmi við lög.
6.gr.
Ef meðferðarþegi er yngri en 18 ára skal samþykki foreldis/forráðamanns liggja fyrir.
7.gr.
Dáleiðandi skal jafnan sýna heiðarleika og virðingu í samskiptum sínum við starfsfélaga og aðra meðferðaraðila og skuldbindur sig til að reka ábyrga starfsemi.
8.gr.
Dáleiðandi leitast við að gera ekkert sem til vanvirðu má teljast gagnvart sínu félagi eða meðferðarþega, hvorki í ræðu né riti, né nokkurt annað sem rýrt geti álit almennings á dáleiðslumeðferðum eða skert hagsmuni stéttarinnar.
Sé talið að dáleiðandi hafi brotið þessar reglur getur viðkomandi kært dáleiðandann til stjórnar Félags klínískra dáleiðeinda með tölvupósti á netfangið info@fkdal.is eða bréflega á heimilisfang félagsins Ármúla 23, 108 Reykjavík.
Tilgreina skal hvaða ákvæði viðkomandi telur hafa verið brotið.
Stjórnin vísar málinu til siðanefndar sem tekur það til umfjöllunar og skilar skriflegri og rökstuddri niðurstöðu til stjórnar. Stjórnin tekur málið fyrir og kemst að niðurstöðu skv. 11. gr. samþykkta Félags klínískra dáleiðenda. Viðkomandi skal upplýstur um niðurstöðuna.
Stjórn félagsins
Formaður:
Ingibergur Þorkelsson 835 5600
Ritari:
Egill Gylfason 824 1115
Gjaldkeri:
Guðbjörg Erlendsdóttir 776 1220
Aðrir meðstjórnendur:
Halldóra Vébjörnsdóttir 862 3281
Ingibjörg Hrönn Ingimarsdóttir 894 3338
Varamenn:
Birta Einarsdóttir
Hildur Salína Ævarsdóttir
Mirjam Yrsa Friðleifsdóttir
Sigurbjörg Kristjánsdóttir
Sóley Björk Gunnlaugsdóttir
Siðanefnd:
Sandra Grétarsdóttir 892 6691
Guðbjörg Erlendsdóttir 776 1220
Halldóra Vébjörnsdóttir 862 3281
Félagsmenn eru:
Aldís Arna Tryggvadóttir
Anna Rós Jensdóttir
Auður Árnadóttir
Axel Bragason
Ágústa Ósk Óskarsdóttir
Álfdís Elín Axelsdóttir
Álfheiður Eva Óladóttir
Álfrún Elsa Hallsdóttir
Ása Hrönn Sæmundsdóttir
Ásdís Olsen
Baldur Héðinsson
Björn Valdimar Halldórsson
Egill Gylfason
Eyrún Björk Svansdóttir
Gísli Freyr Eggertsson
Guðbjörg Erlendsdóttir
Guðbjört Einarsdóttir
Guðmundur Ragnar Hannesson
Guðný Karolína Axelsdóttir
Guðrún María Jóhannsdóttir
Gunnþóra Snæþórsdóttir
Hafdís Ólafsdóttir
Hafdís Sveinsdóttir
Hafrún Kristjánsdóttir
Halldóra Leifsdóttir
Halldóra Vébjörnsdóttir
Hansína Guðmundsdóttir
Harpa Finnsdóttir
Helga Jóna Sigurðardóttir
Helga Þóra Bender
Hildur Inga Rúnarsdóttir
Hildur Salína Ævarsdóttir
Hörður Guðmundsson
Hrafnhildur Hafsteinsdóttir
Hrafnhildur Lóa Guðmundsdóttir
Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir
Hugrún K. Helgadóttir
Hulda Ólafsdóttir
Inga Guðrún Gísladóttir
Ingibergur Þorkelsson
Ingibjörg Hrönn Ingimarsdóttir
Ingimar Pálsson
Jenný Maggý Rúriksdóttir
Jónína Lóa Kristjánsdóttir
Kristín Edda Ragnarsdóttir
Kristín Georgsdóttir
Kristín Sigfúsdóttir
Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir
María Weiss
Marteinn Þór Arnar
Matthildur Hermannsdóttir
Matthildur Pálsdóttir
Mirjam Yrsa Friðleifsdóttir
Ragnheiður Gunnbjörnsdóttir
Ragnheiður J Sverrisdóttir
Ragnheiður Kristín Björnsdóttir
Sandra Grétarsdóttir
Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir
Sigurbjörg Kristjánsdóttir
Sigurlaug Gunnarsdóttir
Sóley Björk Gunnlaugsdóttir
Steinunn Margrét Sigurðardóttur
Steinunn Valdimarsdóttir
Sunnefa Lindudóttir
Thelma Rut Elíasdóttir
Vigdís Viggósdóttir
Vilberg Hafsteinn Jónsson
Þórhallur Guðlaugsson
Þuríður Sólveig Árnadóttir
Ævar Ísberg